Libba og tibba ;)

Pælingar dagsins

04.03.2008 19:55:37 / hronnsan

Nýtt Blogg !!

Ég hef flutt mig um set og er núna með hronnsan.bloggar.is Sjáumst þar :)

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.03.2008 22:16:46 / hronnsan

Upprifjun eldri takta :)

Vá það var brjálæðislega gaman hjá mér um helgina. Við tókum laugardaginn snemma og skunduðum upp í Skálafell með strákana okkar. Það skal tekið fram að undirrituð hefur ekki stigið á skíði síðan ég var 11 ára og ég var nokkuð viss um að ég yrði með eitt og eitt mar eftir daginn. Viti menn þetta man maður,,, að mestu ;) mér tókst að detta einu sinni með tilþrifum auðvitað.. maður dettur ekki öðruvísi, og við það skemmtu sér allir fjölskyldumeðlimir. Sá litli var að stíga sín allra fyrstu skref og það má með sanni sagja að hann var enn og aftur ótrúlega hugaður miðað við hæð og aldur (líkt og mamma hans) Hann sýndi ógurlega takta og sló ekki slöku við á meðan við vorum í brekkunum en datt svo út um leið og á heimleið var haldið, allur alsæll og rjóður í kinnum.
Ég skil reyndar ekki hvers vegna maður er ekki löngu búin að fara í þetta sport með alla fjölskylduna. Þetta var frábær dagur og hreint svakalega nærandi að vera svona undir berum, kappklæddur að glíma við brekkurnar. Nú er bara komið plan um skíðaferð til Ítalíu á næsta ári með fjölskylduna !

Á skíðum skemmti ég mér trallallala;)

Ykkar Hrönnsa

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.02.2008 22:08:41 / hronnsan

Sálarfóður

Var að byrja að mæta í ræktina aftur eftir frí. Ég skil reyndar ekki hvernig hægt er að sleppa því að vera í þessum félagsskap í nokkrar vikur. Það er með ólíkindum að labba inná líkamsræktarstöð á morgnanna kl.06.00 með hárið í hnút og svefninn enn í andlitinu, hitta tútturnar, taka á lóðunum og hlægja svo í um klukkutíma af allkonar vitleysu. Það kemur mér alltaf jafn mikið á óvart hvað við getum verið skemmtilegar svona snemma morguns :d  Frábær hópur skvísa sem allar hjálpast að við aðhaldið og heilbrigðan lífstíl með hvatningu og góðum ráðum varðandi matseld og bakstur í hollustunni. Það er klárt að það er líka aðdráttarafl félagsskaparins sem dregur mann frammúr og útí myrkrið svona snemma.
Ég fer seint aftur í frí frá ræktinni !

Sjáumst hressar í fyrramálið.

Ykkar Hrönnsa

» 0 hafa sagt sína skoðun

28.01.2008 00:12:27 / hronnsan

Heima??

Það er eitt og annað í huga mínum og eitt af því eru borgarmálin... en þar sem ég er að verða búin að fá upp í kok af þeirri umræðu ætla ég að segja : vona að Ólafur sýni hvað í honum býr á meðan við munum eftir aðferðunum sem beitt var og svo ætla ég að tala um eitthvað annað.

Eins og td það að nú er um vika síðan ég kom heim og mér er ennþá kalt, ég á afar erfitt með að vakna á morgnanna, ég er líka komin með hor í nös og dagurinn er ekkert að verða lengri. Með öðrum orðum er það þannig að ég er mikið að spá í að flytja af klakanum og ég velti því mikið fyrir mér hvers vegna hér er yfirleitt byggð. Við erum svo ótrúlega smá ögn í heimsmyndinni en samt teljum við okkur svo merkileg og erum hreint forviða og sármóðguð ef fólk ekki veit hvaðan við komum... Iceland you know... in the North !! Það er með ólíkindum hvað við höfum náð að gera með þessar fáu hræður... í alvöru. Við eigum afreksfólk í íþróttum, tónlistarfólk á heimsmælikvarða, auðmenn sem söðla um og kaupa upp heilu keðjurnar og bankana í evrópu svo tökum við alltaf þátt í stórmótum og erum iðulega búin að vinna þau áður en lagt er af stað:) Við tökum líka alltaf þátt í evróvision og skiljum bara ekki hvers vegna við vinnum aldrei... !! Nú og svo erum við með allavega tvenna ef ekki þrenna meirihluta sem stýra borginni okkar með reglulegum vaktaskiptum til að tryggja að menn þreytist síður. Það hlýtur td að vera fádæmi í milljónasamfélagi eins og okkar :) Já ég er stolt af því að vera íslendingur því við erum stórkostleg, framtakssöm, stórhuga og bjartsýn.

Og ég var rétt í þessu að slá fyrra met mitt í innanhúsröfli...

Góða nótt :)

Ykkar Hrönnsa


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.01.2008 00:43:00 / hronnsan

Gleði barnsins

Ég áttaði mig á því í dag að það þarf ekki krónu til að gleðja börnin sín. Ég átti frí í dag og spurði son minn 3ja ára hvort hann vildi koma með mömmu sinni í bíó eða fara út að leika í snjónum. Hann valdi það síðarnefnda auðvitað og við klæddum okkur í gallanna og skunduðum af stað með snjóþotuna. Hann hló stanslaust í hálfa aðra klukkustund og þá mest af mömmu sinni þegar hún þaut niður brekkuna á snjóþotunni. Við bjuggum svo til engla og fórum í snjókast og svo dró ég hann um hálfann garðabæinn á þotunni.

Við komum heim með roða í kinnum og bros á vör. Hann búin að fá útrás fyrir barnið í sér og ég búin að ná tengslum við barnið í mér. Hituðum okkur kakó og gæddum okkur á kökubita þegar heim var komið. Það græddu allir á þessarri samveru.

Hamingjan fæst ekki keypt :)

Ykkar einlæg. 


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.01.2008 13:41:18 / hronnsan

Heima er best.

Jæja við erum þá mætt aftur á klakan. Brrrrr hér er kalt ! Talsverð viðbryggði að koma úr +40  gráðum í -2 ! En það er samt með ólíkindum gott að vera komin heim og það er engu líkara en að það sé einna best við ferðalagið... eða allavega það næst besta. Það er orðið heldur langt síðan ég bloggaði síðast og það má skýra með því að ég var ekki í góðu sambandi við umheiminn síðustu vikurnar í Chile. En þegar þið heyrðuð frá mér síðast var ég á leið til Argentíu og var að fara að verja helgi í Buenos Airesr. Það var frekar skemmtilegt en heittttttttt og blautt. Það var 40+ þar og 50% raki.... en hitinn og rakinn fór frekar mikið í skapið á mér :S

Þetta frí var með öllu frekar merkilegt og allir tóku út sinn þroska og reynslu á þessu ferðalagi. Ég lærði ýmislegt þó minnst í spænsku...en það er sennilega aldurinn :) Ég mæli þó ekki með því að fólk fari í svona langt frí... allavega ekki þeir sem eru frekar aktívir í eðli sínu.

Notarlegt að vera komin heim og ég er þakklát fyrir það sem ég á og fyrir að vera íslendingur.

Ykkar einlæg.


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.01.2008 02:19:44 / hronnsan

Argentína og sambandsleysi .....

Óska ykkur gledilegs ars kaeru vinir ! Vid erum buin ad hafa thad svo rosalega gott herna uti. Vorum ad koma til Santiago nuna i kvold en ferdinni er heitid til Argentínu í fyrramalid. Attum frábaer áramót í Pingueral med Eiriksson fjolskyldunni. Bordudum grillmat úti í gardi og horfdum svo á fremur litla en mjog svo vinalega flugeldasýningu á vegum baejarins á strondinni. Thetta var MUN minna en madur a ad venjast heima en ég kunni ad meta thad thar sem mér er meinilla vid flugelda....:)

Thad sem var serstakt vid Pingueral er ad thar er litlu sem engu sambandi haegt ad ná vid umheiminn, sem er reyndar líka gott. Dagarnir hafa thví farid í ad liggja á strondinni og lesa og muna eftir ad snua sér reglulega ..... jú og brenna á bakinu og einu sinni á maganum thví sólin hér er med sterkara móti. Nú svo er búid ad vera ad reyna á snillina vid ad búa til kastala úr sandi og hvernig handleika skal tennisspada... en ég er audvitad ordin afar gód í thví....

Nú verd ég ad fara ad kíkja í toskurnar og velja vel thad sem fer med til Argentínu tví thar verdur verslad !!!!

Sakna ykkar og hlakka til ad sjá ykkur

Ykkar einlaeg, Hronnsa 


» 1 hafa sagt sína skoðun

26.12.2007 15:24:48 / hronnsan

Jólin búin í Chile ....

Áttum fjörugt og yndislegt aðfangadagskvöld þar sem mikið var um gleði, hlátur, pakka og súkkulaði :) Strákarnir voru alsælir með allt sem þeir fengu þó eitt og eitt hafi vakið yfirþyrmandi kæti eins og íþróttaálfabúningur með öllu tilheyrandi sem við fundum handa litla manninum hérna í Chile og leikjatölva sem Halldór Óli fékk.

Áttum svo afar ljúfan jóladag þar sem sofið var lengi og allir voru í náttfötunum fram eftir degi. Svo var auðvitað haldið Eiriksson open þar sem strákarnir kepptu í borðtennis við mikinn fögnuð og stuðning áhorfenda. Svo var borðað það sem eftir var af jólasteikinni og tekið í Hornafjarðarmanna. Hrannar veiktist í nótt og átti frekar erfitt í uppælum og leiðindum. Hann er nú samt allur að koma til, er farinn að leika sér og rífast við mig og Bósa ljósár svo þetta er allt í áttina :)

Við erum svo að undirbúa að fara til Pingeral í dag þar sem við ætlum að vera á ströndinni fram yfir áramót og hafa það gott. Þar ætla ég að læra eitthvað í tennis en Philip kærasti Rannveigar er tennisþjálfari og það verður farið á völlinn alla morgna. Hlakka mikið til því til þess að verði ekki afmynduð þegar ég kem heim af átinu sem á sér stað hér mjög seint á kvöldin verð ég sko að hrista þetta af mér :)

En nú er hin hefðbundna jólahátíð búin i Chile og í dag er bara ósköp venjulegur dagur. Við Rannveig ætlum að fara að láta dekra aðeins við okkur á hárgreiðslustofu niðri í bæ.

Þar til næst hafið það sem allra best á öðrum degi jóla.

Ykkar Hrönnsa


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.12.2007 23:22:50 / hronnsan

Ótrúleg jól !

Í fjölskyldunni hefur fæðst annað jólabarn  ! en Ásta og Þröstur eignuðust sitt 4rða barn í nótt og á afmælisdegi elstu dóttur sinnar. Stóran og stæðilegan strák :) Mikið gleðiefni og heilsast öllum vel. Ég get vart beðið eftir að fá að sjá myndir af prinsinum og hvað þá að sjá hann ! Til hamingju elskurnar !!!

En þessir síðustu dagar fyrir jól hafa verið hreint ótrúlegir. Þvílíka afslöppun hef ég vart upplifað ! En þannig var að það er skíðasvæði hér sunnar sem þau Binna og Grímur sækja reglulega allann veturinn því hér snjóar vel í fjöll frá júní fram til september. Við ákváðum að þetta svæði yrðum við að skoða og rétt að skjótast var stefnan þann 22.desember og markmiðið var að koma heim frekar snemma á þorlák :) þegar við vorum komin þarna uppeftir var hreinlega ekki annað hægt en að dvelja þarna fram á aðfangadag og vörðum við því þorlák uppí fjöllum á brjálæðislega fallegu hóteli þar sem við fórum í spa og allavega dekur og lágum svo í sólbaði og létum okkur líða vel. Ég hef komist að því að þrátt fyrir uppeldi sem kallar á ultra stress fyrir jólin og allt þarf að vera svo fullkomið og tilbúið kl. 6 á aðfangadagskvöld ... að það er hægt að vera algörlega stresslaus fyrir jólin og það þarf ekki allt að vera tilbúið kl.6 á aðfangadagskvöld. ´

Fórum í morgun með krakkana í útreiðatúr í fjöllunum og lögðum svo af stað um hádegi. Komum við í Tien og keyptum í jólamatinn og gáfum öllum að borða. Nú er klukkan að ganga 10 og það er enn verið að elda og gera klárt. Við verðum líklega að taka upp pakka fram á nótt :)

Grímur sagði mér á heimleiðinni í dag að 24rði er líkt og í bandaríkjunum, þorlákur á íslandi. Hér eru allar búðir opnar fram til miðnættis og það er svo jóladagur sem öllu máli skiptir. Allavega hjá þeim sem yfirleit halda jólin hátíðleg en það er ekki langt síðan hér var tekin upp sú hefð að hafa tré til skreytinga og þóttu þau frekar klikkuð þegar þau fyrir þeim 15 árum sem þau komu hingað fóru af stað til að kaupa jólatré. Þurfti því eitt í garðinum hjá þeim að víkja og fá nýtt hlutverk í stofunni :) Svo eru flestir hér sem lítið stressa sig á hátíðinni. Gefa gjafir innan fjölskyldunnar eingöngu en halda páskana mun hátíðlegri. Að sögn Grímsa halda þeir frekar uppá fæðingu frelsarans en dauða hans.

Þetta frí hefur hingað til verið hreint með ólíkindum og það er sko vel þess viðri að brjóta upp jólahefðirnar og upplifa það gert er í öðrum löndum í tilefni jólanna.

Óska ykkur öllum gleðilegra jóla og hafið það sem allra best !

Jólakossar og knús úr hitanum :) 


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.12.2007 00:18:47 / hronnsan

Kærkomið frí....

Ég má til með að segja ykkur frá nokkuð hefðbundum degi so far í þessu yndislega fríi í suður ameríku. Það er þannig að hér er vaknað svona frá ca 9 - 11 og þá tuskast maður niður í hlaðborð morgunverðar hjá Margaritu. Hún snýst í kringum alla og sér til þess að allir fái heitt kaffi, heitt brauð og annað það sem þarf til að vakna, á hreint sama tíma hvenær fólk er að týnast að borðinu. Hrannar talar íslensku við hana og hún spænsku við hann og á einhvern undraverðan hátt eru þau að skilja hvort annað. Hann vefur henni um fingurnar á sér og til dæmis um dekrið sem hann verður fyrir hjá henni þá fundum við Binna piparkökur í búðinni um daginn sem við komum smekklega fyrir í jólaboxum og ákváðum að státa okkur af þessum bakstri sjálfar. Þessar kökur eru búnar núna og þær fóru allar í munninn á þeim litla. Komust við að því að hann á leynilegt samband við Margaritu og hann fer í eldhúsið til hennar og biður hana um köku, hún gefur honum og hann kemur svo aftur og segir una mas sem þýðir eina enn og þakkar svo fyrir sig á spænsku. Það gæti hugsast að hann hefði kænskuna frá mömmu sinni... en ég er samt ekki viss :)

Þegar við höfum borðað er tekin sturta, svo er sest út í garð með Pisko Sour og plan gert fyrir daginn.  Í gær fórum við td í sumarfötunum og versluðum jólagjafir. Komum svo heim, bárum á okkur sólarvörn og sóluðum okkur í garðinum. Bjuggum okkur svo til steik um 9. Þetta líf er með ólíkindum og ég er að segja ykkur að það verður ekki auðvelt að koma heim og þurfa að þvo af sér sjálfur og búa um, Þetta er vægt til orða tekið .....ljúft og vel metið.

Ykkar einlæga fordekraða jólaprinsessa


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.12.2007 23:11:49 / hronnsan

Stéttaskipting !

Það er ótrúlega mikil stéttaskipting hér í Chile og það má segja að sitt hvoru megin við hefðbundin gatnamót sé á annann veg um að ræða þvílíkur hallirnar og á hinum, kofar sem varla halda vatni né vindi. Keyrðum til Pingeral í fyrradag og þurftum við að keyra í gegnum bæ sem heitir Tuma þar sem fátæktin er mikil. Fyrir utan að fyllast depurð við að keyra þar í gegn fylltist ég þakklæti fyrir velmegunina sem maður lifir í. Það er samt alveg sama hvar maður kemur eða stoppar, allstaðar er fólk vingjarnlegt og hlýlegt í viðmóti. Rétt handan við brekkuna á enda Tuma tekur við Pingeral, lokað svæði fólks sem á peninga þar sem öryggisgæsla er mikil og húsin stórfengleg og umhverfið snyrtilegt og fallegt með vel snyrtum einkaströndum. Engu líkara en að keyra á nokkur hundruð metrum, milli tveggja heima.

Minnir mann svo sannarlega á að þakka fyrir sig.

Ykkar Hrönnsa


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.12.2007 02:28:22 / hronnsan

Chile !

Jæja þá erum við loks lent í Chile. 24ra stunda ferðalag að baki og við erum komin til Binnu og Gríms í Concepcion ca 500 km suður af Santiago. Hér er auðvitað sól og hiti því hér er hásumar eða öllu heldur vor en sumardagurinn fyrsti er 21.desember. Við höfum lítið annað gert síðan við komum hingað en að slappa af því ferðalagið hingað var helst til langt og við höfum öll þurft á hvíldinni að halda.Hér hefur nú ekki væst um okkur hér en við höfum komið okkur vel fyrir í stóru gestaherbergi og höfum hvílst þar vel.Margarita hefur svo séð til þess að borðstofuborðið svigni undan kræsingum allavega 2 svar á dag. Hún er yndisleg, heldur öllu hreinu hér, eldar og passar uppá að engan vanti neitt J Talar reyndar ekki stakt orð í ensku og ég þurfi því að taka upp orðabókina þegar mig vantaði herðatré um daginn og það tókst bara nokkuð vel. Hún kom allavega með nokkur herðatré til mín eftir samtalið okkar og rétti mér nokkur.En eins og ég sagði ykkur þá er hér hásumar og í gærkvöldi upplifðum við einkennilegt kvöld á aðventunni. Við grilluðum nautasteik á stuttbuxunum. Við Binna opnuðum rauðvín og sátum í garðinum á meðan verið var að grilla. Fórum svo inn í stofu og hlustuðum á íslenskan jóladisk á meðan við borðuðum steikina........ég get alveg vanist þessu. 

Stefni á að vera flúent í spænsku þegar ég kem heim J og ég er farin að stinga því að Margaritu að það sé ágætt að vera á íslandi ;)

 Þar til næst hafið það gott. Með kveðju og kossi frá Chile

» 1 hafa sagt sína skoðun

10.12.2007 22:16:38 / hronnsan

Jæja þá...

Nú styttist óðum í ferðalagið mikla og það eru núna ca 2 sólarhringar í brottför. Ég er nett að fara yfir um en keppist við að halda kúlinu.....grrrrr. Hringdi í vinkonu mína í dag og tjáði henni að mér fyndist ég þurfa að halda kveðjuhóf því ég væri að fara svo langt og yrði svo lengi í burtu. Er samt viss um að í því er ákveðin mömmusýki því enginn er svona ómissandi (ekki einu sinni ég :) og það gerist ekkert hræðilega mikið á meðan. Jú það koma jól,, en það eru líka jól í Chile.. þau eru bara pottþétt ekki hvít og sennilega í ca 27 gráðum. Það verður öðruvísi en það er gott að upplifa öðruvísi. Við vinkonurnar höfum áttað okkur á því að ef maður þolir ekki breytingar beri það vott um öldrun og það er sko ekki málið hér !  Ég er samt alveg pottþétt á einu.. það er einn og einn og einn sem ég á eftir að sakna mikið í þessu sambandsleysi mínu við klakann, en það góða er að ég kem aftur :)

Ég vil þakka þeim sem gáfu mér ráð og líka þeim sem seldu þau dýru verði.... þau koma sér flest afar vel.... :)

Hlakka til að leyfa ykkur að fylgjast aðeins með á meðan ég er úti.

Tjá tjá ....


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.11.2007 16:23:55 / hronnsan

Ferðalög og flughræðsla...

Þegar ég hef verið spurð að því hvort að ég sé flughrædd hef ég alltaf sagt: " nei alls ekki þannig sko heldur finnst mér það bara líkamlega óþægilegt"  hvað er það ??? Þvílíkt og annað eins rugl... sjaldan heyrt af annarri eins vitleysu. Ég viðurkenni það hér með að ég er bullandi flughrædd ! ég hef bara náð að plata ykkur til að halda annað :)

Nú stend ég frammi fyrir því að vera á leið í lengra ferðalag en ég hef nokkru sinni farið í og við erum að tala um 2 flugvélar, 3 lendingar, sólarhring á ferðalagi og þar af ca 20 á flugi. Ef ég væri að fara ein væru þessar áhyggjur mínar léttbærar en ég er að fara með alla fjölskylduna mína í þessa svaðilför. Það eru 2 vikur til stefnu og ég er afar upptekin af að finna leið til að svæfa okkur öll á fluginu á eins náttúrulegan hátt og völ er á. Auglýsi hér með eftir ráðum, greiddum eða gefnum, sem hjálpa mér að komast í gegnum þetta ferðalag. Grasatöflur (geð og svefn), Ipot, litabækur, lesefni og allt annað er getur stytt mér og mínum stundirnar. Ég hef nú þegar fjárfest í öryggisól fyrir yngsta fjölskyldumeðliminn sem gengur ýmist undir nafninu Íþróttaálfurinn eða Bósi ljósár. Ótrúlega hugaður miðað við hæð og því líklegur til alls.... ætla ekki að týna honum í suður ameríku.

Nú er ég að fara að pakka...

Góðar stundir....

 Ykkar Hrönn


» 1 hafa sagt sína skoðun

07.11.2007 13:39:05 / hronnsan

Afmæli og aðrar refsingar...

Afmæli eru vanmetin fyrirbæri. Ég er alveg með því að fólk sem á afmæli fái að vera aðalnúmerið í einn dag á ári. Það dugar okkur flestum sem höfum eðlilega athyglisþörf. Sonur minn rúmlega þriggja ára er afar upptekin þessa dagana af afmælum meðal annars. Honum þykir það mjög svo merkilegt fyrirbæri og helst vildi hann eiga afmæli á hverjum degi. Hann notar þau tímamót líka til hótanna og þá aðallega þá með því að meina manni aðgang í afmælið sitt. Allir þeir sem beita hann ranglæti þessa dagana fá að heyra þá fleygu setningu: þú mátt þá ekki koma í afmælið mitt !   Það er sem sagt hin fullkomna refsing í huga þriggja ára barns :) Það væri góður heimur að búa í þar sem allir hugsuðu þannig....

En það var sem sagt fyrir 35 árum síðan (sjáiði, þetta segi ég stolt) í dag sem þessi afburða fallega og gáfaða kona sem þetta ritar kom í þennan litríka heim. Ég man eftir því þegar ég varð 30 ára og var á allt öðrum stað í lífinu nánar á þeim stað þar sem ég var alltof full af sjálfri mér til að finnast það hreinlega geta staðist að ég væri að eldast..... Í dag er annað uppá teningnum og ég hreinlega finn til með þeim af vinum mínum sem ekki hafa náð 35 ára aldrinum :lol: Ég er þess sannfærð að þetta eigi bara eftir að verða betra. Daginn ætla ég að nota til að njóta samverunnar við litla kútinn minn sem söng svo fallega afmælissönginn fyrir mömmu sína í morgun og ætlar að koma í afmælið mitt. Ég ætla svo að hringja í mömmu og minna hana á afmælið mitt og þakka henni fyrir að hafa búið mig til og heiðrað þannig heiminn með nærveru minni ;)

Njótið dagsins,

Hrönnsa

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Klukkan
Heimsóknir
Í dag:  13  Alls: 12876
Dagsetning
23. febrúar 2012
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
Tenglar
Eitt og annað áhugavert